Fotbolti.net
30.09.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Steve McClaren tekinn við Derby (Staðfest)

Steve McClaren.

Steve McClaren.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve McClaren, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Derby í ensku Championship deildinni.
McClaren hefur starfað við þjálfun hjá QPR síðan í júlí en nú er hann orðinn knattspyrnustjóri á nýjan leik.

Nigel Clough var rekinn sem knattspyrnustjóri Derby um helgina og var í fyrstu talið að Tony Pulis myndi taka við liðinu.

McClaren spilaði með Derby á sínum tíma og var svo fjögur ár hjá félaginu sem aðstoðarmaður Jom Smith. Á þjálfaraferli sínum hefur hann stýrt Middlesbrough til sigurs í deildabikarnum og FC Twente til Hollandsmeistaratitils.

Steve McClaren
Fæddur: 3. maí 1961
Spilaði fyrir: Hull City, Derby County, Lincoln City (loan), Bristol City, Oxford United
Lið sem hann hefur stýrt: Middlesbrough, England, FC Twente (tvisvar), Wolfsburg, Nottingham Forest
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.