Mist Edvardsdóttir er leikmaður 15. umferðar í Pepsi Max-deild kvenna eftir fernu í 7-0 útisigri Vals gegn Fylki. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir miðjumaður Vals er einnig í liðinu og Pétur Pétursson er þjálfari umferðarinnar.
Alexandra Jóhannsdóttir, Agla María Albertsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir voru á skotskónum í 8-0 sigri Breiðabliks á ÍBV. Hafrún Rakel Halldórsdóttir átti góðan leik í bakverðinum þar. Valur og Breiðablik mætast í toppslag á laugardaginn.
Friðrika Arnardóttir markvörður Þróttar og vinstri bakvörðurinn Mary Alice Vignola áttu góðan leik í 3-1 útisigri gegn Selfyssingum.
María Catharina Gross var maður leiksins í mikilvægum útisigri Þórs/KA á FH í botnbaráttunni.
Shameeka Fishley var maður leiksins í 2-0 útisigri Stjörunnar á KR. Þar var Ingunn Haraldsdóttir best í liði KR.
Sjá einnig:
Lið 1. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 10. umferðar
Lið 11. umferðar
Lið 12. umferðar
Lið 13. umferðar
Lið 14. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir