Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. september 2020 11:00
Elvar Geir Magnússon
United í viðræðum við Barcelona um að fá Dembele lánaðan
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
Manchester United er í viðræðum við Barcelona um að fá Ousmane Dembele lánaðan. Sky Sports fullyrðir þetta.

United vill fá vængmann áður en glugganum verður lokað og hefur tilboðum í Jadon Sancho hjá Borussia Dortmund verið hafnað.

Dembele er 23 ára og var keyptur á metfá til Barcelona frá Borussia Dortmund í ágúst 2017.

Hann er sífellt á meiðslalistanum og aðeins náð að koma við sögu í 75 leikjum í öllum keppnum fyrir Börsunga.

Sky segir að 91,3 milljóna punda tilboði frá United í Jadon Sancho hafi verið hafnað í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner