FC Bayern 4 - 0 Leverkusen
1-0 Leroy Sane ('3)
2-0 Jamal Musiala ('17)
3-0 Sadio Mane ('39)
4-0 Thomas Müller ('84)
FC Bayern er komið aftur á sigurbraut í þýsku deildinni eftir að hafa aðeins fengið þrjú stig úr síðustu fjórum leikjum.
Bayern tók á móti Bayer Leverkusen í fyrsta leik eftir landsleikjahlé og gjörsamlega rúllaði yfir gestina. Hinn efnilegi Jamal Musiala fór á kostum þar sem hann gaf tvær stoðsendingar og skoraði í fyrri hálfleik.
Leroy Sane gerði fyrsta mark leiksins á þriðju mínútu og setti Sadio Mane það þriðja fyrir leikhlé. Thomas Müller gerði út um viðureignina eftir markmannsmistök á lokakaflanum og er Bayern með 15 stig eftir 8 umferðir, tveimur stigum eftir toppliði Union Berlin sem á leik til góða.
Leverkusen hefur farið hörmulega af stað og er óvænt í fallsæti, með ekki nema fimm stig.