Fotbolti.net
30.09.25 - 22:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Svakaleg dramatík í Birmingham

Demarai Gray

Demarai Gray

Canon

Mynd: Birmingham City

Það var svakaleg dramatík þegar Birmingham fékk Sheffield Wednesday í heimsókn.

Jay Stansfield kom Birmingham yfir snemma leiks en Jamal Lowe jafnaði metin fyrir lok fyrri hálfleiks. George Brown kom Sheffield yfir en Demarai Gray jafnaði metin þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og bjargaði þar með stigi fyrir Birmingham.
Alfons Sampsted var ónotaður varamaður hjá Birmingham en Willum Þór Willumsson er áfram á meiðslalistanum.

Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn í fyrsta sinn þegar liðið tapaði gegn Swansea. Liðið er án sigurs í síðustu þremur leikjum.

Preston náði tveggja marka forystu gegn Hull en Ollie McBurnie skoraði tvennu og bjargaði stigi fyrir Hull. Stefán Teitur Þórðarson var ónotaður varamaður hjá Preston.

Það var markalaust í toppslag Middlesbrough og Stoke en Middlesbrough er með fjögurra stiga forystu á toppnum. Southampton nældi í sinn annan sigur þegar liðið lagði Sheffield United sem nældi í sín fyrstu stig eftir sigur gegn Oxford United í síðustu umferð.

Leicester hefur gert fjögur jafntefli í röð eftir jaftnefli gegn nýliðum Wrexham. Derby og Charlton gerðu jafntefli ásamt Bristol City og Ipswich.

Derby County 1 - 1 Charlton Athletic
0-1 James Bree ('37 )
1-1 Matt Clarke ('79 )

Bristol City 1 - 1 Ipswich Town
1-0 Rob Atkinson ('18 )
1-1 Jack Clarke ('52 , víti)

Hull City 2 - 2 Preston NE
0-1 Thierry Small ('3 )
0-2 Michael Smith ('10 )
1-2 Oli McBurnie ('48 )
2-2 Oli McBurnie ('74 )

Leicester City 1 - 1 Wrexham
1-0 Jordan James ('36 )
1-1 Nathan Broadhead ('77 )

Middlesbrough 0 - 0 Stoke City

Sheffield Utd 1 - 2 Southampton
1-0 Tyrese Campbell ('28 )
1-0 Adam Armstrong ('45 , Misnotað víti)
1-1 Ross Stewart ('51 )
1-2 Ross Stewart ('58 )

Blackburn 1 - 2 Swansea
1-0 Todd Cantwell ('28 )
1-1 Goncalo Franco ('44 )
1-2 Liam Cullen ('67 )

Birmingham 2 - 2 Sheffield Wed
1-0 Jay Stansfield ('9 )
1-1 Jamal Lowe ('37 )
1-2 George Brown ('77 )
2-2 Demarai Gray ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea8+717
2West Ham8+1115
3Middlesbrough8+415
4Wolves7+514
5West Brom8+214
6QPR8+313
7Stoke City8+113
8Bristol City8-113
9Charlton Athletic8-312
10Birmingham8+111
11Millwall8011
12Lincoln City8-111
13Southampton8+910
14Wrexham8-310
15Bolton8-410
16Blackburn809
17Norwich8-19
18Sheffield Utd8-29
19Portsmouth7-18
20Watford8-38
21Cardiff City8-27
22Derby County8-75
23Preston NE8-74
24Burnley8-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.