Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
   mán 08. júní 2026 14:25
Kári Snorrason
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Fékk gjafabréf að launum.
Fékk gjafabréf að launum.
Mynd: Kári Snorrason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kennie Chopart leikmaður Fram var valinn leikmaður maímánaðar í Bestu deild karla hér á Fótbolta.net.

Hann hlaut um 37% atkvæða í kosningu sem var á forsíðu Fótbolta.net en hægt var að kjósa á milli sex leikmanna sem tilnefndir voru af sérstakri valnefnd.

Kennie skoraði fimm mörk í maí og er fyrirliði Fram en liðið er í þriðja sæti í Bestu deildinni. Hann gerði sér leið á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi við undirritaðan.

Stigu upp eftir Þórstapið
„Það er búið að ganga mjög vel hjá Fram núna og ég er búinn að skora mikið. Ég er bara búinn að vera heppinn að vera sá sem skorar.“

„Ég held að Rúnar hafi sagt hvað honum finnist um spárnar fyrir mót,“ sagði Kennie léttur og vísaði þar í viðtal Rúnars við Val Pál Eiríksson á Vísi á dögunum.

„Við erum komnir með góðan hóp núna. Við bættum tveimur, þremur leikmönnum við okkur en við héldum okkur eins. Allir eru með sitt hlutverk í leiknum. Eftir að við töpuðum á Akureyri (gegn Þór) þá ræddum við kannski ekki saman en við ákváðum að gera miklu betur en það og það hefur gengið eftir,“ sagði sá danski jafnframt.

Sami leikmaður og mætti til Íslands
Kennie er markahæsti leikmaður liðsins með sex mörk í deild, sem verður að teljast óvenjulegt fyrir vængbakvörð. Hann var spurður um hvernig hann gæti lýst stöðunni sem hann spilar hjá Fram.

„Ég myndi ekki segja að ég væri frjáls, því ég er líka að vinna til baka. Ef ég fer fram þá er ég fyrsti maðurinn til að spretta til baka, eins og ég er búinn að gera allan minn tíma á Íslandi. Ég er ekki búinn að breyta neitt hvernig ég er, bara heppinn að skora mörk núna. Ég er sami leikmaður og mætti til Íslands á sínum tíma,“ sagði Kennie.

Aðspurður um hvort að landsleikjahléið hafi verið kærkomið svaraði Kennie léttur:„Ég held að þetta sé lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner