Fotbolti.net
30.09.26 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeild kvenna: Thelma steinlá gegn Juve - Arsenal missti forystuna

Meistaradeild kvenna: Thelma steinlá gegn Juve - Arsenal missti forystuna
Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu og var Thelma Karen Pálmadóttir á sínum stað í byrjunarliði ríkjandi Evrópubikarshafa BK Häcken.
Thelmu tókst þó ekki að koma í veg fyrir 0-3 tap á heimavelli gegn ítalska stórveldinu Juventus, þar sem gestirnir nýttu færin sín til að hafa betur í jöfnum slag.

Staðan var markalaus í leikhlé og tókst Juve að refsa Svíunum grimmilega með þremur mörkum í seinni hálfleik. Juve er með þrjú stig eftir tap á heimavelli gegn Benfica í fyrstu umferð á meðan Häcken situr eftir án stiga eftir tap gegn Inter í fyrsta leik.

Arsenal heimsótti á sama tíma Paris FC til Frakklands og komst í tveggja marka forystu en missti hana niður í seinni hálfleik, svo lokatölur urðu 2-2. Georgia Stanway skoraði og lagði upp fyrir Arsenal.

Arsenal, sem vann Meistaradeildina 2025 og komst í undanúrslit á síðustu leiktíð, er með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. Þetta er fyrsta stigið hjá Paris FC eftir tap í Barcelona í fyrstu umferð.

Að lokum rúllaði Barcelona yfir ítalska stórveldið AS Roma. Caroline Graham Hansen og Claudia Pina settu sitthvora tvennuna á meðan Ewa Pajor skoraði og lagði upp í sex marka sigri í Róm.

Barca er með sex stig og markatöluna 11-2 eftir tvær fyrstu umferðirnar. Roma er með eitt stig eftir jafntefli við OH Leuven í Belgíu.

Hacken W 0 - 3 Juventus W
0-1 Tatiana Pinto ('57 )
0-2 Emma Godo ('77 )
0-3 Alba Redondo ('88 )

Paris FC 2 - 2 Arsenal
0-1 Alessia Russo ('41 )
0-2 Georgia Stanway ('50 )
1-2 Clara Mateo ('72 )
2-2 Maeline Mendy ('87, víti)

Roma 0 - 6 Barcelona
0-1 Caroline Graham Hansen ('19 )
0-2 Shukurat Oladipo ('39, sjálfsmark )
0-3 Claudia Pina ('54 )
0-4 Caroline Graham Hansen ('60 )
0-5 Claudia Pina ('75 )
0-6 Ewa Pajor ('85 )
Meistaradeild kvenna: Thelma steinlá gegn Juve - Arsenal missti forystuna
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild kvenna: Thelma steinlá gegn Juve - Arsenal missti forystuna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.