30.10.15 - 21:42
Elvar Geir Magnússon
Stefán Ragnar aftur í Selfoss (Staðfest)

Stefán Ragnar í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Stefán Ragnar í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Varnarmaðurinn Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. Frá þessu er greint á sunnlenska.is.
„Mér líst rosalega vel á þetta og er mjög spenntur. Selfossliðið er búið að vera í lægð og við ætlum að reyna að snúa því við. Það eru klárlega spennandi tímar framundan hérna þar sem stefnan er sett á að byggja eitthvað gott upp,\" sagði Stefán Ragnar í samtali við vefsíðuna en Selfoss hafnaði í 10. sæti 1. deildarinnar í sumar.
Gunnar Borgþórsson skrifaði eftir tímabilið undir samning um áframhaldandi þjálfun liðsins.
„Ég er í raun búinn að vera að bíða eftir því að hann taki við liðinu því að ég held að hann sé alveg klárlega rétti maðurinn í að byggja þetta upp. Hann var auðvitað hörkuleikmaður á sínum tíma og er mjög góður þjálfari,\" sagði Stefán.
Stefán er uppalinn hjá Selfyssingum og lék síðast með meistaraflokki félagsins í Pepsi-deildinni sumarið 2012. Síðan þá hefur hann leikið fyrir Val, Fylki og ÍBV en í sumar lék hann fimm leiki með Eyjamönnum á lánssamningi.

Heimild: Sunnlenska