Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. október 2020 17:46
Magnús Már Einarsson
Keppni hætt á Íslandsmótinu og í Mjólkurbikarnum (Staðfest)
Valsmenn eru Íslandsmeistarar.
Valsmenn eru Íslandsmeistarar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er Íslandsmeistari í kvennaflokki.
Breiðablik er Íslandsmeistari í kvennaflokki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík er komið aftur í Pepsi Max-deildina.
Keflavík er komið aftur í Pepsi Max-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir vinna 2. deildina og eru komnir í Lengjudeildina.
Kórdrengir vinna 2. deildina og eru komnir í Lengjudeildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í dag, föstudaginn 30. október, að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppni KSÍ 2020, í samræmi við 5. grein í reglugerð um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru (Covid-19), sem gefin var út í júlí síðastliðnum. Ákvörðunin tekur strax gildi.

Þetta þýðir að Valur er Íslandsmeistari í karlaflokki og Breiðablik í kvennaflokki. FH, Breiðablik og Stjarnan fara í Evrópukeppni í karlaflokki en KR situr eftir. Breiðablik og Valur fara í Evrópukeppni í kvennaflokki en Ísland fær tvö sæti þar á næsta ári. Fjölnir og Grótta falla úr Pepsi Max-deild karla en FH og KR úr Pepsi Max-deild kvenna.

Keflavík og Leiknir R. fara upp úr Lengjudeild karla en Fram situr eftir á markatölu. Magni og Leiknir F. fara niður. Þróttur R. endaði með einu marki betra en Magni í markatölu.

Kórdrengir og Selfoss fara upp í Lengjudeildina en Víðir Garði og Dalvík/Reynir falla niður í 3. deild. KV og Reynir Sandgerði fara upp úr 3. deildinni en Vængir Júpíters og Álftanes falla niður í 4. deild. KFS og ÍH fara upp úr 4. deildinni.

Keflavík og Tindastóll fara upp í Pepsi Max-deild kvenna en Fjölnir og Völsungur falla niður í 2. deild.

Bókun stjórnar KSÍ:
Í ljósi hertra sóttvarnarreglna, sem banna íþróttastarf á Íslandi a.m.k. til 17. nóvember nk. og að fenginni tillögu mótanefndar, verður ekki séð að unnt sé að halda keppni áfram á Íslandsmótunum í knattspyrnu. Stjórn KSÍ samþykkir því að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppni KSÍ 2020, sem fyrirhugað var að ljúka fyrir lok nóvember.

Ákvörðun þessi er stjórninni þungbær en nauðsynleg með heildarhagsmuni knattspyrnuhreyfingarinnar í huga. Í reglugerð sem stjórn KSÍ setti í júlí sl. er kveðið á um hvernig haga skuli málum ef ekki verður unnt að ljúka keppni innan framlengds keppnistímabils. Það er samdóma álit stjórnar KSÍ og mótanefndar að ekki séu fyrir hendi forsendur til að halda keppni áfram í ljósi stöðu mála. Það byggist m.a. á eftirfarandi:

a) Ekki eru lengur fyrir hendi umtalsverðar líkur á því að unnt sé að ljúka mótahaldi fyrir 1. desember með ásættanlegum hætti.
b) Sú mikla röskun sem hefur orðið á mótahaldi síðustu vikur og bann við æfingum liða á höfuðborgarsvæðinu leiðir af sér að gera verður ráð fyrir undirbúningstíma liðanna ef æfingar og keppni verða á ný heimilaðar um miðjan nóvember. Þetta takmarkar enn frekar þann tíma sem unnt væri að nýta sem leikdaga. Einnig verður að hafa í huga í því sambandi heilsu og velferð leikmanna.
c) Hertar sóttvarnarreglur og lýðheilsusjónarmið mæla því mót að unnt verði með einhverri vissu að halda keppni áfram út nóvembermánuð – ef slíkt verður á annað borð heimilað.
Yfirstandandi keppnistímabil hefur verið afar óvenjulegt eins og flest annað í samfélaginu. Upphafi tímabilsins seinkaði verulega og í tvígang hefur þurft að gera hlé á keppni. Þessi framgangur hefur reynt mjög á alla knattspyrnuhreyfinguna - félögin og forsvarsmenn þeirra, leikmenn , dómara, þjálfara, starfsmenn, sjálfboðaliða, skipuleggjendur móta og allt áhugafólk um íslenska knattspyrnu. Þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður hefur tekist að ljúka um 80% af leikjum efstu deildar karla og um 90% af leikjum annarra deilda, en 4. deild karla og yngri flokkum náðist að ljúka. Það er árangur í sjálfu sér og ber að þakka öllum þeim sem lagt hafa á sig mikla vinnu til þess að ná því marki.

Reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru gerir ráð fyrir því að Íslandsmeistarar og deildarmeistarar verði krýndir, enda hafa 2/3 hlutar leikja allra deildarkeppna verið leiknir. Í reglugerðinni er einnig tilgreint að náist ekki að ljúka keppni í bikarkeppni karla, en Íslandsmóti lýkur samkvæmt grein 5.1.1. í reglugerðinni þá leiki liðið í 4. sæti efstu deildar Íslandsmóts í Evrópukeppni. Ákvæði 5. greinar reglugerðarinnar og greinar 6.2. taka því gildi frá og með deginum í dag. Mótslok með þessum hætti er neyðarviðbragð í ljósi sóttvarnarreglna og ástandsins í samfélaginu. KSÍ ítrekar þakkir til allra sem lagt hafa á sig ómælda vinnu til þess að halda mótum ársins gangandi við óvenjulegar og krefjandi aðstæður.

Stjórn KSÍ minnir á að íslensk íþróttafélög hafa orðið fyrir verulegu fjárhagstjóni sem óhjákvæmilegt er að koma frekar til móts við en gert hefur verið og jafn brýnt er að styðja félögin til þess að snúa við því félagslega tjóni sem orðið hefur með brottfalli iðkenda. Því er skorað á stjórnvöld og sveitarfélög að leggjast á árarnar með íþróttahreyfingunni í því skyni að tryggja það öfluga íþrótta- og æskulýðsstarf sem þar er unnið og viðunandi rekstrarforsendur félaganna.

Það er von okkar að við náum árangri í þeirri baráttu sem er framundan. Starfið heldur áfram og verkefni næstu vikna og mánaða eru mörg og ærin. Meðal þess sem þarf að finna farveg er hin gríðarlega mikilvæga starfsemi yngri flokkanna. Ungir iðkendur þurfa stöðugleika og reglusemi. Krakkarnir treysta á að geta stundað æfingar hjá sínum félögum, þar sem þau styrkja líkamlega og andlega heilsu sína og félagsfærni við æfingar og leik með sínum liðsfélögum.

Við erum sterkust þegar við sýnum liðsheild. Stöndum saman á þessum erfiðu tímum!
Athugasemdir
banner
banner
banner