30.10.21 - 11:19
Aksentije Milisic
Eyjólfur Héðins hættir í Stjörnunni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyjólfur Héðinsson hefur yfirgefið Stjörnuna en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Eyjólfur gekk til liðs við Stjörnuna árið 2016 en hann lék alls 132 leiki fyrir og skoraði í þeim leikjum fimm mörk. Mest tókst honum að spila 19 deildarleiki á einu tímabili hjá Stjörnunni en það gerði hann í Pepsi Max deildinni árið 2019.
Eyjólfur hefur verið orðaður við Fylki og ÍR en þá gæti hann einnig farið í FH. Hann og Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, ná vel saman.
Hér að neðan má sjá skilaboð frá Eyjólfi til Stjörnunnar.
„“Ég hef átt 6 mjög góð ár í Stjörnunni og það er með miklum trega sem ég ákveð að yfirgefa félagið. Ég vil nota tækifærið og þakka þjálfurum og leikmönnum fyrir samstarfið, sem og sjúkraþjálfurum, liðsstjórum og öðrum sem hafa komið að meistaraflokki karla. Þá þakka ég Silfurskeiðinni og öðrum stuðningsmönnum kærlega fyrir stuðninginn í gegnum árin,” segir Eyjólfur Héðinsson