30.10.21 - 06:00
Victor Pálsson
Ólafur Aron yfirgefur Þór (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Ólafur Aron Pétursson mun ekki spila með Þór næsta sumar en hann hefur yfirgefið félagið.
Þetta kom fram í tilkynningu Þórsara í gær en Ólafur Aron spilaði með Þór í Lengjudeildinni bæði 2020 og 2021.
Ólafur skoraði fjögur mörk í 21 leik í sumar og skoraði þá eitt mark í 17 leikjum árið 2020.
Ólafur er fæddur árið 1995 en hann er uppalinn hjá KA og hefur þá einnig leikið með Magna á ferlinum.
Miðjumaðurinn Liban Abdulahi verður þá ekki áfram hjá félaginu eftir að hafa komið til Akureyrar í mars.