Fotbolti.net
30.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Algjör lykilmaður í umgjörð Vestra áfram hjá félaginu

Algjör lykilmaður í umgjörð Vestra áfram hjá félaginu
Canon

Mynd: Vestri

Lengjudeildin
Styrktar- og sjúkraþjálfarinn Ferran Corominas hefur framlengt samning sinn við Vestra um eitt ár.

Tilkynning Vestra
Styrktar- og sjúkraþjálfari Vestra, Ferran Corominas, hefur framlengt samning sinn við Vestra um eitt ár. Ferran er algjör lykilmaður í umgjörð liðsins þar sem hann hefur tekið alla styrktarþjálfun á hærra plan.

Ferran kemur frá Barcelona og er með tvær háskólagráður í íþróttavísindum og sjúkraþjálfun og tvær meistaragráður, annars vegar í “High performance training” og “Injury prevention and treatment”.

Hann er einnig með UEFA B réttindi í knattspyrnuþjálfun. Áður en hann kom til Vestra starfaði hann við að hjálpa knattspyrnumönnum og ferðast á milli landa og vinna við alþjóðlegar sumarbúðir FC Barcelona. Honum líkar ákaflega vel við norðanverða Vestfirði, sem spilar stórt hlutverk í ákvörðun hans um áframhaldandi samstarf.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.