Fotbolti.net
29.10.26 - 15:24
Elvar Geir Magnússon

Viktor Bjarki byrjaði þegar FCK fór örugglega áfram

Viktor Bjarki Daðason.

Viktor Bjarki Daðason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

FC Kaupmannahöfn vann 3-0 útisigur á Aarhus Fremad í dönsku bikarkeppninni í dag og er komið í 8-liða úrslit.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK og fékk dauðafæri til að skora í leiknum sem hann nýtti ekki. Það kom þó ekki að sök því gæðamunurinn á liðunum var talsverður. Viktor lék 65 mínútur.
William Clem og Mohamed Elyounoussi skoruðu í fyrri hálfleik og sáu til þess að FCK var með tveggja marka forystu í leikhléi. Í seinni hálfleik kom síuðasta mark leiksins en það var sjálfsmark.

Ólafur Dan Hjaltason var í byrjunarliði Arhus Fremad, sem leikur í B-deildinni, og lék hann í 78 mínútur. Gunnar Olsen kom inn sem varamaður á 76. mínútu hjá FCK en Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.