Fotbolti.net
30.10.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Óttast að Lacroix verði frá fram yfir áramót

Óttast að Lacroix verði frá fram yfir áramót
Canon

Mynd: EPA

Chelsea óttast að varnarmaðurinn Maxence Lacroix verði frá keppni í langan tíma eftir að hafa orðið fyrir meiðslum aftan í læri.
Þessi 26 ára gamli franski landsliðsmaður gæti verið frá keppni fram í janúar.

Meiðslin áttu sér stað undir lok fyrri hálfleiks í leik gegn Liverpool í Carabao-bikarnum á miðvikudaginn, leik sem Chelsea tapaði í vítaspyrnukeppni, þegar Lacroix hljóp og reyndi að komast í veg fyrir skottilraun.

Lacroix, sem kom frá Crystal Palace í sumar fyrir 52 milljónir punda, hefur byrjað alla leiki nema einn hjá Chelsea. Aðeins sóknarmaðurinn Morgan Rogers hefur spilað fleiri mínútur fyrir Chelsea á þessu tímabili en Lacroix.

Chelsea situr í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 13 stig eftir átta leiki, en liðið hefur aðeins haldið hreinu í einum þeirra.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.