Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 30. nóvember 2020 21:32
Victor Pálsson
„Ekki annað hægt en að klappa fyrir Kane"
Mynd: Getty Images
Declan Rice, leikmaður West Ham, er gríðarlegur aðdáandi Harry Kane sem er helsta vopn Tottenham í sóknarlínunni.

Declan Rice, leikmaður West Ham, er gríðarlegur aðdáandi Harry Kane sem er helsta vopn Tottenham í sóknarlínunni.

Rice og Kane eru samherjar í enska landsliðinu en sá fyrrnefndi spilaði sinn fyrsta leik í mars í fyrra.

Kane er af mörgum talinn einn allra besti framherji heims en hann elskar fátt meira en að skora mörk.

„Í síðustu landsliðsferð þá sagði ég við Eric Dier [samherja Kane] að ég hefði aldrei séð menn klára færi eins og Harry Kane, aldrei," sagði Rice.

„Við unnum í því að klára færin og hann skoraði úr öllum skotum fyrir utan D-bogann með bæði afli og nákvæmni."

„Ég veit hversu góður hann er en það var klikkað að verða vitni af þessu. Sem aðdáandi og leikmaður þá er ekki annað hægt en að klappa."
Athugasemdir
banner