Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. nóvember 2020 19:25
Victor Pálsson
Ítalía: Jafnt hjá Torino og Sampdoria
Mynd: Getty Images
Torino 2 - 2 Sampdoria
1-0 Andrea Belotti('25)
1-1 Antonio Candreva('54)
1-2 Fabip Quagliarella('63)
2-2 Soualiho Meite('77)

Fyrri leik kvöldsins í ítölsku úrvalsdeildinni er nú lokið en Sampdoria og Torino áttust við í síðustu viðureign níundu umferðar.

Það hefur lítið gengið hjá liði Torino á þessu tímabili en liðið hafði aðeins unnið einn leik af átta fyrir leikinn í kvöld.

Það varð engin breyting á því en leiknum lauk með 2-2 jafntefli og má segja að þau úrslit hafi verið sanngjörn.

Sampdoria er með 11 stig í 11. sæti deildarinnar en Torino situr í fallsæti með aðeins sex stig.

Ekkert lið hefur fengið fleiri mörk á sig en Torino sem er með markatöluna 16:22 og er í töluverðu basli.
Athugasemdir
banner
banner
banner