Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 30. nóvember 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland mætir Kýpur í síðasta landsleik ársins
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mætir Kýpur í undankeppni HM klukkan 17:00 á AEK Arena í Larnaca.

Ísland er í 2. sæti riðilsins með 6 stig en Kýpur með aðeins 1 stig í neðsta sæti.

Þetta er síðasti landsleikur kvennalandsliðsins á þessu ári en liðið mun halda áfram á næsta ári að undirbúa sig af kappi fyrir Evrópumótið og klára undankeppnina fyrir HM.

Tékkland og Hvíta-Rússland mætast einnig í riðli Íslands en sá leikur hefst klukkan 16:00.

HM 2023 - kvenna - Landslið
16:00 Tékkland-Hvíta-Rússland (Mestský fotbalovy)
17:00 Kýpur-Ísland (AEK Arena)
Athugasemdir
banner
banner
banner