30.12.13 - 16:40
Alexander Freyr Tamimi
Alonso aftur til Englands - Lánaður til Sunderland (Staðfest)

Marcos Alonso lék áður með Bolton.

Mynd: Getty Images

Marcos Alonso lék áður með Bolton.

Mynd: Getty Images
Marcos Alonso, bakvörður Fiorentina, mun ganga til liðs við Sunderland á láni út janúar þegar félagaskiptaglugginn opnar í vikunni.
Vinstri bakvörðurinn hefur staðist læknisskoðun og samþykkt að spila á Leikvangi Ljóssins út þetta tímabil, en hann lék áður með Bolton og yfirgaf félagið fyrir Seríu A síðasta sumar.
,,Ég get staðfest að Marcos verður með okkur út tímabilið,“ sagði knattspyrnustjórinn Gus Poyet.
,,Mig vantaði leikmann í þessa stöðu vinstra megin og ég vona að hann muni hjálpa okkur og að öllum líki vel við hann.“