Fotbolti.net
30.12.13 - 21:45
Ívan Guðjón Baldursson

Ray Wilkins aðstoðarþjálfari Fulham (Staðfest)

Wilkins og Ancelotti að gamna sér

Wilkins og Ancelotti að gamna sér

Canon

Mynd: Getty Images

Ray Wilkins hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Fulham skömmu eftir ráðningu Alan Curbishley í stöðu tæknilegs ráðgjafa.

Fulham hefur ekki gengið vel á tímabilinu og er liðið í fallbaráttu um áramótin, með 16 stig eftir 19 umferðir.
,,Ég veit að reynslan og þekkingin sem Ray býr yfir eru lífsnauðsynlegir hlutir í þessari baráttu,\" sagði René Meulensteen, knattspyrnustjóri Fulham.

,,Það er gríðarlega mikilvægt fyrir langtímaskipulagið að við höldum okkur í deildinni.

,,Ég er ánægður með ákvörðun stjórnarinnar að styðja hugmyndir mínar um reynslumikla aðstoðarmenn á borð við Ray og Alan.\"


Wilkins var knattspyrnustjóri Fulham fyrir meira en fimmtán árum þegar félagið var í neðri deildum en var rekinn. Hann hætti sem aðstoðarknattspyrnustjóri hjá Chelsea árið 2010.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.