30.12.13 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sosa til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jose Sosa, 28 ára gamall argentínskur miðjumaður, vill komast í landsliðshóp fyrir HM í Brasilíu næsta sumar og er því kominn til Atletico Madrid á lánssamning.
Sosa var búinn að ná samkomulagi við Malaga en skipti um skoðun vegna góðs gengis Atletico í Meistaradeildinni.

,,Við höfum komist að samkomulagi og Jose Sosa mun spila með Atletico Madrid næstu sex mánuðina. Samkomulagið inniheldur ákvæði sem gerir félaginu kleift að kaupa leikmanninn næsta sumar,\" sagði Ezequiel Manera, talsmaður Sosa.
,,Á morgun mun Jose Sosa, ásamt Maximiliano Pra, lenda í Madríd. Við viljum þakka öllum hjá Metalist fyrir skilninginn því næstu sex mánuðir eru gríðarlega mikilvægir fyrir leikmanninn.\"
Sosa er leikmaður Metalist Kharkiv í Úkraínu en áður lék hann með Estudiantes, Bayern Munchen og Napoli.

Heimild: ISP