Fotbolti.net
30.12.15 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi

Gladbach fær Hofmann frá Dortmund (Staðfest)

Jonas Hofmann yfirgefur Dortmund.

Jonas Hofmann yfirgefur Dortmund.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Borussia Mönchengladbach hefur gengið frá kaupunum á Jonas Hofmann frá Dortmund, en kantmaðurinn skrifaði undir samning til ársins 2020.

Þýskir fjölmiðlar halda því fram að kaupverðið á þessum 23 ára gamla leikmanni sé 8 milljónir evra, en Hofmann átti erfitt með að festa sig í sessi hjá Dortmund.

Hann hafði einungis byrjað fjóra leiki á þessu tímabili, en hann kom til Dortmund árið 2011. Hann var á láni hjá Mainz á síðustu leiktíð en meiðsli gerðu það að verkum að hann gat einungis spilað 10 deildarleiki.

Gladbach er í fjórða sæti deildarinnar í jólafríinu, níu stigum frá Dortmund. Liðin mætast þann 23. janúar þegar Bundesligan snýr aftur úr vetrarfríi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.