Fotbolti.net
30.12.15 - 19:25
Arnar Geir Halldórsson

Robert til Barcelona (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Barcelona

Nýjasti liðsmaður Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur fengið nítján ára Brasilíumann að nafni Robert Goncalves að láni frá Fluminense.
Robert undirgekkst læknisskoðun á Nou Camp í morgun en hann mun leika með B-liði Barcelona út þessa leiktíð. Liðið leikur í C-deildinni á Spáni.

Barcelona hefur möguleika á að kaupa Robert frá Fluminense næsta sumar.

Robert hefur aðeins leikið fimm leiki fyrir aðallið Fluminense og skorað í þeim eitt mark en hann á einnig leiki að baki fyrir yngri landslið Brasilíu.

Hann þykir einn af efnilegri leikmönnum Brasilíu um þessar mundir en hann var frá vegna meiðsla eftir alvarlegt bílslys í tæpt ár þegar hann var 17 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.