Fotbolti.net
30.12.21 - 20:46
Brynjar Ingi Erluson

Bára Kristbjörg ráðin aðstoðarþjálfari Selfoss (Staðfest)

Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson handsala samninginn

Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson handsala samninginn

Canon

Mynd: Selfoss

Kvennaboltinn
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir er nýr aðstoðarþjálfari Selfoss í efstu deild kvenna en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Björn Sigurbjörnsson var ráðinn aðalþjálfari liðsins eftir að hafa unnið sem aðstoðarþjálfari hjá sænska félaginu Kristianstad síðustu tíu ár.

Hann styrkti sig með að fá Sif Atladóttur frá Kristianstad og nú hefur Selfoss nælt í Báru.

Bára þjálfaði U17 og U19 ára lið Kristianstad ásamt því að vera sjúkarþjálfari aðalliðsins. Hún verður aðstoðarþjálfari Selfoss ásamt því að sinna sjúkraþjálfun liðsins.

Hún hefur mikla reynslu úr þjálfun en hún hefur komið að þjálfun hjá FH, Stjörnunni, Val og Augnabliki.

„Mig langaði til þess að flytja heim og það heillaði mig mikið að halda áfram að vinna með Bjössa, því við vorum byrjuð á því úti. Það er ótrúlega gott að geta flutt heim og haldið áfram okkar góða samstarfi. Selfoss er með skemmtilegt lið og hér er ótrúlega spennandi uppbygging. Ég á von á jafnri og spennandi deild næsta sumar og Selfoss á góða möguleika á því að ná árangri, annars væri ég ekki komin hingað," sagði Bára eftir undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.