31.01.13 - 11:32
Magnús Már Einarsson
Alejandro Faurlin til Palermo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Palermo hefur fengið Alajandro Faurlin á láni frá QPR út tímabilið.
Þessi 26 ára gamli miðjumaður hefur lítið fengið að spreyta sig í liði QPR á þessu tímabili.
Faurlin kom til QPR frá argentínska félaginu Instituto árið 2009.
Þau félagaskipti áttu eftir að draga dilk á eftir sér því enska knattspyrnusambandið ákærði QPR fyrir að hafa ekki staðið rétt að skiptunum.
Um tíma leit út fyrir að enska knattspyrnusambandið myndi draga stig af QPR vorið 2010 en svo fór ekki og liðið sigraði ensku Championship deildina fyrir vikið.