Fotbolti.net
31.01.13 - 22:51
Magnús Már Einarsson

Andros Townsend til QPR á láni (Staðfest)

Andros Townsend til QPR á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið kantmanninn Andros Townsend á láni frá Tottenham út þetta tímabil.

Harry Redknapp, stjóri QPR, staðfesti þetta í samtali við Sky nú rétt í þessu.
Í morgun var óvissa með félagaskipti Townsend þegar hann mætti í læknisskoðun hjá QPR en þurfti frá að hverfa á nýjan leik.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur nú skrifað undir lánssamning við QPR en hann er þriðji leikmaðurinn sem félagið fær í dag.

QPR hefur einnig fengið Christopher Samba og Jermaine Jenas í sínar raðir á þessum lokadegi félagaskiptagluggans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.