31.01.13 - 21:29
Sebastían Sævarsson Meyer
Brek Shea til Stoke City (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Stoke City hefur tilkynnt að Bandaríkjamaðurinn Brek Shea er genginn til liðs við félagið frá FC Dallas fyrir 2,5 milljónir punda.
Þessi 22 ára kantmaður hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Stoke.
Þessi 22 ára kantmaður hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Stoke.
Á fjórum árum spilaði Shea 98 leiki fyrir FC Dallas og skoraði 19 mörk. Hann á 15 landsleiki að baki með Bandaríkjunum og lék einnig fyrir öll yngri landslið þjóðarinnar.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, sagði í viðtali á dögunum að hann væri mjög spenntur fyrir leikmanninum sem býr yfir miklum hraða og með góðan vinstri fót.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, sagði í viðtali á dögunum að hann væri mjög spenntur fyrir leikmanninum sem býr yfir miklum hraða og með góðan vinstri fót.
