31.01.13 - 12:25
Magnús Már Einarsson
Christopher Samba í QPR á metfé (Staðfest)

Samba er tröll að burðum.

Mynd: Getty Images

Samba er tröll að burðum.

Mynd: Getty Images
QPR hefur keypt varnarmanninn Christopher Samba frá rússneska félaginu Anzhi Makhachkala.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé í kringum 12,5 milljónir punda.
Samba er þar með dýrasti leikmaður QPR frá upphafi en Loic Remy hafði áður slegið það met fyrr í mánuðinum þegar hann kom frá Marseille.

Orðrómur er um að Samba muni fá 100 þúsund pund í vikulaun eða 20 milljónir íslenskar króna en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við QPR.
,,Ástæðan fyrir því að ég fer er sú að ég vil vera nær fjölskyldu minni og strákunum mínum 2,\" skrifaði Samba á Twitter síðu sína.
,,Núna hlakka ég til að hitta nýju liðsfélagana og reyna að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í deildinni.\"