Fotbolti.net
31.01.13 - 14:05
Magnús Már Einarsson

Danny Graham í Sunderland (Staðfest)

Graham er mættur til Sunderland.

Graham er mættur til Sunderland.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt framherjann Danny Graham frá Swansea á fimm milljónir punda.

Graham, sem er 27 ára gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við Sunderland.

Graham er frá Norður-Englandi og hann hafði áhuga á að komast aftur á heimaslóðir.
,,Um leið og ég heyrði af áhuga Sunderland þurfti ég ekki að hugsa um aðra möguleika sem voru á borðinu,\" sagði Graham.

,,Ég fæddist og ólst upp á Norður-Englandi og ég veit frá fyrstu hendi hversu mikil ástríðan er fyrir fótbolta hér. Hún er sérstök og það er ekkert líkt þessu annars staðar.\"

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.