31.01.13 - 16:41
Magnús Már Einarsson
David Beckham til PSG (Staðfest)

Beckham er mættur í PSG.

Mynd: PSG

Beckham er mættur í PSG.

Mynd: PSG
David Beckham er formlega genginn í raðir Paris Saint Germain í Frakklandi.
Beckham hefur skrifað undir samning við PSG sem gildir út þetta tímabil.
Victoria eiginkona hans og fjögur börn þeirra munu búa í London á meðan á samningstímanum stendur en börnin eru þar í skóla.

,,Ég hef ekki talað frönsku síðan að ég var í skóla svo ég þarf að dusta rykið af frönskunni,\" sagði Beckham á fréttamannafundi í dag.
,,Ég er spenntur. Þetta er eitthvað sem við höfum rætt um í talsverðan tíma og núna er þetta loksins klárt.\"
Beckham kemur frítt til PSG en samningur hans við LA Galaxy rann út í lok síðasta árs.
,,Ég er mjög heppinn. Ég er 37 ára gamall og ég hef aldrei fengið jafnmörg tilboð. Ég valdi París af því að ég sé hvað félagið er að reyna að gera og sé hvaða leikmenn það er að fá.\"