Fotbolti.net
31.01.13 - 22:22
Magnús Már Einarsson

DJ Campbell í Blackburn (Staðfest)

DJ Campbell í Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið framherjann DJ Campbell í sínar raðir frá QPR.

Campbell hefur krotað undir tveggja og hálfs árs samning hjá Blackburn.

Campbell hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá QPR en hann skoraði aftur á móti tíu mörk á láni hjá Ipswich fyrr á tímabilinu.
Hull vildi einnig fá Campbell í sínar raðir en á endanum gekk hann til liðs við Blackburn.

Hjá Blackburn mun hann væntanlega spila frammi með hinum öfluga Jordan Rhodes sem kom til félagsins frá Huddersfield síðastliðið sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.