Fotbolti.net
31.01.13 - 22:10
Magnús Már Einarsson

Emre til Fenerbahce (Staðfest)

Emre til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fenerbahce hefur keypt miðjumanninn Emre Belozoglu frá Atletico Madrid á 350 þúsund evrur.
Emre skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Fenerbahce en hann fær 1,2 milljónir evra í laun út tímabilið og tvær milljónir evra á ári eftir það.

,,Ég er gríðarlega ánægður og ég held að allir stuðningsmenn Fenerbahce séu ánægðir,\" sagði Abdullah Kigili varaforseti Fenerbahce.

Emre fór frá Fenerbahce til Atletico Madrid fyrir tímabilið en náði ekki að sanna sig á Spáni.

Þessi 32 ára gamli Tyrki hefur einnig leikið með Galatasaray, Inter og Newcastle á ferli sínum.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.