31.01.13 - 17:06
Magnús Már Einarsson
Heurelho Gomes til Hoffenheim (Staðfest)

Gomes er alltaf ferskur.

Mynd: Getty Images

Gomes er alltaf ferskur.

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Hoffenheim hefur fengið markvörðinn Heurelho Gomes á láni frá Tottenham út tímabilið.
Gomes hefur fallið ansi neðarlega í goggunarröðinni hjá Tottenham undanfarið.
Hugo Lloris og Brad Friedel eru báðir á undan Gomes í röðinni hjá Tottenham í dag.
Þessi 31 árs gamli Brasilíumaður hefur nú gengið til liðs við Hoffenheim, fyrrum félag Gylfa Þórs Sigurðssonar.
Gomes kom til Tottenham frá PSV árið 2008 og hefur leikið 136 leiki með liðinu á ferli sínum.

Heimild: Heimasíða Tottenham