Fotbolti.net
31.01.13 - 22:00
Magnús Már Einarsson

Hlynur Atli í Þór (Staðfest)

Hlynur Atli í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Atli Magnússon hefur ákveðið að ganga til liðs við Þór en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Hlynur mun skrifa undir tveggja ára samning við Þór um helgina.

Hlynur Atli losnaði undan samningi hjá Fram á dögunum en hann fékk samningi sínum rift eftir úrskurð hjá samninga- og félagaskiptadeild KSÍ.

Þórsarar gerðu tilboð í Hlyn Atla fyrir áramót en Fram hafnaði því. Þessi 22 ára gamli leikmaður er laus allra mála núna og Þórsarar hafa náð samkomulagi við hann.
,,Heimasíða Þórs bíður Hlyn Atla velkomin til Þórs og vonandi á hann eftir að blómstra hjá okkur og njóta lífsins í Þórsbúningnum,\" segir á heimasíðu Þórs.

Hlynur Atli er uppalinn hjá Fram en hann hefur skorað tvö mörk í 60 bikar og deildarleikjum með liðinu á ferlinum.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.