Fotbolti.net
31.01.13 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Mario Balotelli til AC Milan (Staðfest)

Mario Balotelli til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur gengið frá kaupunum á Mario Balotelli framherja Manchester City. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 17 milljónir punda en það gæti þó hækkað ef Balotelli stendur sig vel hjá AC Milan.

Balotelli er sjálfur búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning sem gildir til sumarsinss 2017.
Balotelli kom til Manchester City frá Inter á 24 milljónir punda árið 2010 en hann hefur nú gengið til liðs við erkifjendurnar í AC Milan.

Sjálfur hefur Balotelli haldið með AC Milan síðan í æsku og hann er hæstánægður með félagaskiptin.

„Ég hljóp til Milan um leið og tækifærið kom. Ég hef lengi viljað spila fyrir þetta lið en hef verið hjá öðrum liðum og því ekki haft tækifærið,\" sagði Balotelli í gær.

Balotelli mun leika í treyju númer 45 hjá AC Milan. Hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Udinese á sunnudagskvöld en sá leikur verður í beinni á Sporttv.is og Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.