31.01.13 - 22:59
Magnús Már Einarsson
Nacho Monreal til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur keypt vinstri bakvörðinn Nacho Monreal frá spænska félaginu Malaga.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það hljóði upp á um það bil 8,5 milljónir punda.

,,Við erum ánægðir með að Nacho Monreal hafi gengið til liðs við okkur,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
,,Við höfum fylgst með honum í þónokkurn tíma og við erum ánægðir með að ganga frá þessum félagaskiptum í dag.\"
Monreal er 26 ára gamall en hann á níu landsleiki að baki með spænska landsliðinu.
Hann gæti hoppað beint inn í lið Arsenal gegn Stoke um helgina en Kieran Gibbs, vinstri bakvörður Arsenal, meiddist gegn Liverpool í gærkvöldi og verður frá keppni næstu vikurnar.
Brasilíumaðurinn hressi Andre Santos leysti Gibbs af hólmi í gær en hann hefur verið allt annað en sannfærandi í leikjum Arsenal á þessu tímabili.
Santos gæti þó þurft að spila gegn FC Bayern í Meistaradeildinni ef Gibbs verður ekki klár í slaginn því Monreal er ólöglegur þar eftir að hafa leikið með Malaga í keppninni.

Heimild: Heimasíða Arsenal