31.01.13 - 09:51
Magnús Már Einarsson
Paul Scharner til Wigan (Staðfest)

Scharner og Heskey á góðri stundu fyrir nokkrum árum.

Mynd: Getty Images

Wigan hefur fengið varnarmanninn Paul Scharner á láni frá Hamburg út tímabilið.
Scharner er 32 ára gamall Austurríkismaður en hann hefur ekki fest sig í sessi hjá Hamburg síðan hann kom til félagsins síðastliðið sumar.
Scharner þekkir mjög vel til hjá Wigan en hann lék með liðinu frá 2005-2010 áður en hann fór til WBA.

,,Það er frábært að vera kominn til baka. Wigan mun alltaf skipa stóran sess í hjarta mínu,\" sagði Scharner.
Scharner mun leika í treyju númer 33 hjá Wigan en hann gæti leikið með liðinu gegn Southampton um helgina.

Heimild: Heimasíða Wigan