31.01.13 - 10:40
Magnús Már Einarsson
Rúnar Már í Zwolle (Staðfest)

Mateusz Klich og Rúnar Már gengu til liðs við Zwolle í dag.

Mynd: Heimasíða Zwolle

Hollenska félagið Zwolle hefur fengið miðjumanninn Rúnar Már Sigurjónsson á láni frá Val út tímabilið.
Félagið á síðan möguleika á að gera tveggja ára samning við Rúnar eftir að lánssamningurinn klárast í sumar.

,,,Við höfum fylgst vel með Rúnari. Hann er ungur leikmaður með mikla hæfileika,\" sagði Gerard Nijkamp tæknilegur ráðgjafi hjá Zwolle.
Á dögunum virtist hinn 22 ára gamli Rúnar Már vera á leið til GIF Sundsvall í Svíþjóð en í vikunni kom Zwolle inn í myndina.
Zwolle er í 14. sæti af 18 liðum í hollensku úrvalsdeildinni, með jafnmörg stig og Roda sem er í fallsæti.
Félagið hefur nú krækt í Rúnar Már sem og hinn pólska Mateusz Klich sem kemur frá þýska félaginu Wolfsburg.
Rúnar Már átti flott tímabil með Val í fyrra en hann lék sinn fyrsta landsleik og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Andorra í nóvember síðastliðnum.

Heimild: Heimasíða Zwolle