Fotbolti.net
31.01.13 - 22:07
Magnús Már Einarsson

Simon Dawkins til Aston Villa (Staðfest)

Simon Dawkins til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur fengið framherjann Simon Dawkins á láni frá Tottenham út tímabilið.

Dawkins er 25 ára gamall en hann hefur ekki ennþá leikið deildarleik með Tottenham á ferli sínum.

Undanfarin tvö ár hefur Dawkins verið í láni hjá San Jose Earthquakes í MLS deildinni.
Þar skoraði Dawkins samtal 14 mörk í 53 leikjum en hann mun nú reyna að hjálpa Aston Villa í fallbaráttunni sem er framundan.

Dawkins er enskur en hann á einnig ættir að rekja til Jamaíka.

Heimild: Heimasíða Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.