Fotbolti.net
31.01.13 - 15:58
Magnús Már Einarsson

Sylla til Villa (Staðfest)

Paul Lambert stjóri Aston Villa.

Paul Lambert stjóri Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt miðjumanninn Yacouba Sylla frá franska félaginu Clermont Foot.

Talið er að kaupverðið hljóði upp á tvær milljónir punda en Sylla krotaði undir þriggja og hálfs árs samning.
Sylla, sem er 22 ára gamall, er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir hjá Villa.

Fleiri félög höfðu áhuga á Sylla, meðal annars félög á Ítalíu og í Þýskalandi.

Sylla ákvað hins vegar að semja við Aston Villa en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Everton á laugardag.

Heimild: Heimasíða Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.