Fotbolti.net
31.01.14 - 16:57
Magnús Már Einarsson

Björn Bergmann til Molde (Staðfest)

Björn Bergmann til Molde (Staðfest)
Canon

Mynd: Molde

Molde hefur fengið Björn Bergmann Sigurðarson á láni frá Wolves út þetta ár.

Björn Bergmann mun því leika allt tímabilið í Noregi með Molde en keppni þar hefst í lok mars.
Björn Bergmann er mættur til Spánar þar sem Molde er í æfingaferð en hann fór í læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði í kjölfarið undir lánssamninginn.

Ole Gunnar Solskjær tók Mats Møller Dæhli og Jo Inge Berget með sér til Cardiff og því þurfti Molde að styrkja sóknarleikinn.

Björn Bergmann hefur verið úti í kuldanum hjá Wolves að undanförnu en nokkur önnur félög sýndu einnig áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Molde varð norskur meistari 2011 og 2012 en í fyrra endaði liðið í sjötta sæti í úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.