31.01.14 - 21:05
Magnús Már Einarsson
Dimitar Berbatov til Monaco (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Monaco hefur fengið Dimitar Berbatov á láni frá Fulham en samningurinn gildir út tímabilið.
Berbatov hefur ekki verið í stuði á þessu tímabili en hann hefur einungis skorað fjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Þessi 33 ára gamli Búlgari var orðaður við endurkomu til Tottenham en endaði hjá Monaco.
Monaco hefur verið í leit að framherja eftir að ljóst var að Radamel Falcao mun ekki spila meira á tímabilinu vegna meiðsla.
Monaco er í öðru sæti í frönsku deildinni, þremur stigum á eftir toppliði PSG.