Fotbolti.net
31.01.14 - 12:42
Daníel Freyr Jónsson

Emmanuel Frimpong seldur til Barnsley (Staðfest)

Emmanuel Frimpong.

Emmanuel Frimpong.

Canon

Mynd: Barnsley

Enski miðvallarleikmaðurinn Emmanuel Frimpong er genginn í raðir Barnsley frá Arsenal.

Hann skrifaði undir samning út leiktíðina og fer beint í leikmannahóp liðsins sem mætir Sheffield Wednesday á morgun.
Frimpong, sem er 22 ára gamall, náði einungis að leika sex úrvalsdeildarleiki á erli sínum með Arsenal eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf félagsins.

,,Ég mun aldrei yfirgefa Arsenal, jafnvel þó að ég verði leystur undan samningi. Ég mun fara á hnén og biðja um að vera áfram,\" sagði Frimpong árið 2012.

Eftir að hafa ekkert fengið að spila undanfarið ákvað Frimpong hins vegar að sætta sig við að fara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.