Fotbolti.net
31.01.14 - 20:45
Ívan Guðjón Baldursson

Griffiths til Celtic (Staðfest)

Griffiths til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skosku meistararnir í Celtic hafa staðfest komu sóknarmannsins Leigh Griffiths frá Wolves.

Griffiths kom til Úlfanna 2011 og gerði frábæra hluti á láni hjá skoska félaginu Hibernian.
Hann hefur verið í baráttu við Björn Bergmann Sigurðarson um byrjunarliðssæti hjá Wolves á tímabilinu en Björn var lánaður til Molde og nú hefur Griffiths verið seldur til Celtic.

Griffiths er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning en kaupverð er ekki gefið upp. Vitað er að þetta var þriðja tilboð Celtic í leikmanninn í janúarglugganum þar sem Úlfarnir höfnuðu tveimur þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.