31.01.14 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Gunnar Valur í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Gunnar Valur Gunnarsson hefur gengið að nýju til liðs við Fjölni eftir að hafa leikið með KA undanfarin tvö ár.
Gunnar Valur skrifaði undir samning sem gildir út þetta ár.

,,Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir Fjölni því Gunni Valur er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Fjölnis og var hann fyrirliði liðsins í nokkur ár,\" segir í tilkynningu frá Fjölnismönnum.
Áður en Gunnar Valur fór í KA hafði hann leikið allan sinn meistaraflokksferil með Fjölni en hann var meðal annars með liðinu í úrvalsdeildinni 2008 og 2009.
Gunnar Valur er 31 árs gamall en hann mun styrkja leikmannahóp Fjölnis fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar.