31.01.14 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Harry byrjaður - Aaron Hughes til QPR (Staðfest)

Aaron Hughes í baráttu við Luis Suarez.

Mynd: Getty Images

Aaron Hughes í baráttu við Luis Suarez.

Mynd: Getty Images
Enginn knattspyrnustjóri á Englandi elskar síðasta dag félagaskiptagluggans meira en Harry Redknapp stjóri QPR.
Harry er að sjálfsögðu með alla anga úti í dag og hann hefur krækt í varnarmanninn Aaron Hughes á láni frá Fulham út tímabilið.
Harry vonast einnig til að krækja í Kevin Doyle framherja Wolves í dag.
Þá á hann í viðræðum við Manchester United um að fá varnarmaninn Michael Keane á láni.
QPR er sem stendur í öðru sæti í Championship deildinni, átta stigum á eftir toppliði Leicester.