31.01.14 - 16:13
Magnús Már Einarsson
Harry mættur í bílaviðtal - Doyle kominn til QPR (Staðfest)

Harry í viðtali í dag.

Mynd: Twitter

Kevin Doyle.

Mynd: Getty Images

Harry í viðtali í dag.

Mynd: Twitter
Það er fastur liður í félagaskiptaglugganum að sjá Harry Redknapp gefa Sky viðtal í gegnum bílrúðu þegar hann keyrir heim af æfingasvæðinu.
Harry fór í eitt slíkt viðtal rétt í þessu og staðfesti þar að QPR er búið að krækja í Kevin Doyle á láni frá Wolves út tímabilið.
Doyle á að hjálpa til við að fylla skarð markaskorarans Charlie Austin sem verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla á öxl.
Það er nóg að gera Harry eins og vanalega á lokadegi félagaskiptagluggans en í morgun kom Aaron Hughes til QPR frá Fulham.
Þá hefur Harry einnig krækt í brasilíska framherjann Guilherme Dellatorre á láni en hann hefur hins vegar sent varnarmanninn Samba Diakite til Watford á láni út tímabilið.