31.01.14 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Johnny Heitinga til Fulham á frjálsri sölu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Johnny Heitinga, hollenskur varnarmaður, er kominn til Fulham frá Everton.
Everton staðfestir að Heitinga yfirgefur félagið á frjálsri sölu og mun fylla í skarð Philippe Senderos sem var seldur til Valencia fyrr í kvöld.

Heitinga er gríðarlega leikreyndur þar sem hann á yfir 100 leiki að baki fyrir Everton auk 28 leikja fyrir Atletico Madrid og rúmlega 150 fyrir Ajax.
Heitinga er 30 ára gamall og á 87 leiki að baki fyrir A-landslið Hollands. Heitinga vill mikilvægara hlutverk en hjá Everton til að komast í landsliðið fyrir HM í Brasilíu.