31.01.14 - 18:18
Magnús Már Einarsson
Pablo Osvaldo til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur fengið framherjann Pablo Osvaldo á láni frá Southampton út tímabilið.
Juventus hefur síðan kost á að kaupa hann eftir að lánssamningurinn rennur út í sumar.
Osvaldo stóðst læknisskoðun í dag og skrifaði nú síðdegis undir lánssamninginn.

Osvaldo kom til Southampton frá Roma síðastliðið sumar en hann hefur oft komið sér í vandræði á ferlinum.
Undanfarna daga hefur hann verið í banni hjá Southampton eftir að hafa ráðist á liðsfélaga sinn Jose Fonte á æfingu.