Fotbolti.net
31.01.14 - 16:36
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Roma fær brasilískan miðvörð (Staðfest)

Rafael Toloi.

Rafael Toloi.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Sao Paolo hefur staðfest að miðvörðurinn Rafael Toloi hafi gengið í raðir Roma á lánssamningi.
Toloi er 23 ára gamall og kemur til með að leika með Roma á lánssamningi út leiktíðina. Roma hefur síðan rétt á að kaupa leikmanninn fyrir fyrirfram umsamda upphæð.

Sao Paolo keypti Toloi frá Goias árið 2012 og hefur hann lekið 36 leiki með félaginu.

Hann kemur til með að veita Rudi Garcia, stjóra Roma, aukna breidd í varnarleiknum fyrir síðari helming tímabilsins þar sem Roma stefnir á titilbaráttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.