31.01.14 - 11:02
Magnús Már Einarsson
Stefán Gíslason í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Gíslason hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Stefán ákvað í vikunni að fá sig lausan frá OH Leuven í Belgíu og halda heim á leið.

,,Knattspyrnudeild Breiðabliks býður Stefán velkominn heim til Íslands aftur og væntir mikils af honum næstu árin,\" segir í frétt á heimasíðu Breiðabliks.
Stefán verður 34 ára gamall á árinu en hann hefur áður leikið hér á landi í efstu deild með KR og Keflavík. Þá lék Stefán erlendis með Strömsgodset, Grazer, Lyn, Bröndby og Lilleström.
Stefán getur leikið bæði á vörninni og miðjunni en Blikar kynna hann til leiks sem varnarmann á heimasíðu sinni.

Heimild: Heimasíða Breiðabliks